Árskóli er þátttakandi í Evrópuverkefninu BestEDU

Góðar starfsvenjur í evrópskum skólum á tímum Covid

Árskóli er þátttakandi í Evrópuverkefni sem leitt er af vendinámssetri Keilis í Reykjanesbæ en verkefnið snýr að góðum starfsvenjum í evrópsku skólakerfi á tímum Covid. Verkefnið sem nefnist BestEDU er styrkt af Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins. Það er til tveggja ára og er unnið í samstarfi átta skóla og fræðslustofnana í sex Evrópulöndum. 

Fyrsti fundur verkefnisins

Fyrsti fundur verkefnisins fór fram í Danmörku um miðjan október 2021 en þar fengu þátttakendur tækifæri á að kynnast niðurstöðum danskra rannsókna um áhrif Covid, auk þess sem hópnum gafst tækifæri til að heimsækja danskar skólastofnanir og heyra af reynslu kennara og nemenda á skólahaldi á tímum heimsfaraldursins.

Á fundinum voru meðal annars heimsóttir háskólar og framhaldsskólar í Kolding og Haderslev, auk þess sem hópurinn fékk innsýn í viðamikla könnun gerða af UCN professionshøjskolen, sem náði til 85.000 nemenda og 6.000 kennara í níu skólum á háskólastigi. Þá var kynnt samantekt á góðum starfsvenjum í starfsmenntun og þjálfun sem Absalon skólinn í Hróarskeldu framkvæmdi fyrr á árinu.

Sem hluti af afurðum verkefnisins verða tekin saman viðtöl, bæði í formi hlaðvarpsþátta sem og myndbönd, við þátttakendur, kennara og skólastjórnendur. Þessi viðtöl verða gerð aðgengileg á heimasíðu verkefnisins og samfélagsmiðlum á verkefnatímanum, auk þess sem afurðir þess verða gerðar aðgengilegar í lok verkefnatímans vorið 2023.

Hér má þó sjá samantekt dönsku rannsóknanna:

https://www.hojskolerne.dk/sammen-hver-for-sig-kreativitet-i-en-krisetid/

https://www.ucn.dk/forskning/forskningsprogrammer/professionsudvikling-og-uddannelsesforskning/covid-19-undervisning

Um BestEDU verkefnið 

Markmið verkefnisins er að draga saman þær breytingar sem hafa átt sér stað í skólum á undanförnum misserum, hvernig Covid hefur aðlagað skólastarf að breyttu námsumhverfi og hvernig snemmtæk íhlutun og aðlögunarfærni hefur haft jákvæð áhrif á framvindu náms í evrópskum skólum.

Sérstaklega verður litið til reynslu kennara og nemenda á fjarnámi, auk þess hvernig námsgreinar og skólar sem hafa minni reynslu af innleiðingu fjarnáms eða vendináms í skólastarfi geta dregið lærdóm af skólahaldi á tímum Covid. Með því að draga saman raunverulegar reynslusögur verður leitast við að draga saman jákvæða þætti sem gætu nýst skólum í framtíðinni og þegar óviðbúin breytingarferli eiga sér stað. 

Þá munu samstarfsaðilar í verkefninu skoða hvort og hvernig hægt er að yfirfæra þessa reynslu yfir á greinar sem hefur verið erfiðara að mæta á þessum tímum svo sem fræðslu aldraðra, nám í heilsu- og líkamsrækt, menntun í afskekktum byggðum, verk- og iðnnám, svo eitthvað sé nefnt. 

Samstarfsaðilar verkefnisins

Þeir fræðsluaðilar sem taka þátt í verkefninu eiga það sammerkt að hafa aðlagað og innleitt nýjar kennsluaðferðir á undanförnum árum til að mæta breyttri þörf nemenda. Þá var litið til þess að samstarfsaðilarnir væru frá ólíkum sviðum og væru fulltrúar sem flestra skólastiga, svo sem grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum, ásamt starfsþjálfun, fullorðinsfræðslu, verk- og iðnnámsgreinum. Þá hafa samstarfsaðilar einnig reynslu af menntun og fræðslu innflytjenda, minnihlutahópa, aldraðra og nemenda með sérþarfir.

Þátttakendur eru:

Árskóli á Sauðárkróki (Ísland)

Fisktækniskóli Íslands

Háskólinn í Austur Finnlandi (University of Eastern Finland)

Háskólinn í Suður Danmörku (University College South Denmark)

Action Synergy í Grikklandi

Galileo starfsmenntastofnunin á Ítalíu

Slava Raškaj Educational Centre í Króatíu

 

Verkefnið BestEDU er styrkt af Menntaáætlun Evrópusambandsins.