Móttaka nemenda í 2. – 10. bekk sem hefja nám að hausti

Foreldrar/forsjáraðilar innrita barn sitt í skólann hjá skólastjórnendum. Ritari skráir nýja nemendur inn í Mentor. Deildarstjóri/umsjónarkennari kynnir nemendur og foreldra/forsjáraðila hans fyrir starfsfólki skólans  ásamt því að farin er kynnisferð um skólahúsnæðið. 

Nemendur, ásamt foreldrum/forsjáraðilum þeirra, eru boðaðir  til viðtals hjá umsjónarkennurum áður en formlegt skólahald hefst. Umsjónarkennarar veita helstu upplýsingar um skólastarfið. Einnig benda þeir á upplýsingar um skólann á heimasíðu hans. Umsjónarkennarar kynna nemendur fyrir nýjum bekkjarfélögum. 

Foreldrum/forsjáraðilum nemenda í 5. og 8. bekk er boðið upp á sérstaka foreldrafræðslufundi að hausti.