Við syngjum að morgni með æskuléttri lund, því lífið og gæfan oss kalla á sinn fund, og skólans merki hefjum hátt frá jörð til heilla fyrir sveit vora Skagafjörð.
Því okkur er falið að erfa þessa byggð og efla til dáða og rækta starf og tryggð. Á langferð gegnum lífsins bjarta vor, ó, landsins drottinn, blessa þú öll vor spor.
Björn Daníelsson.
|
Sungið af árgangi 2004 á síðustu skólaslitunum í gamla barnaskólahúsinu 2013.