Styrkleikar

Styrkleikar eru jákvæðir eiginleikar fólks sem birtast í hugsunum, tilfinningum og hegðun. Til að teljast styrkleikar þurfa þeir að vera til staðar þvert á aðstæður og tíma. Auk þess verða þeir að bæta við lífsgæði og orku einstaklingsins sjálfs, hafa siðferðislegt gildi og ef þeir eru notaðir til að hafa lítillækkandi áhrif á aðra teljast þeir ekki sem styrkleikar.

Styrkleika er hægt að efla og styrkja með aukinni og markvissri notkun. 

Þegar við þekkjum styrkleika okkar og notum þá markvisst í mismunandi aðstæðum:

  • stuðla þeir að aukinni vellíðan. 

  • auka þeir sjálfsöryggi, sjálfsvirðingu og bjartsýni.

  • geta þeir dregið úr kvíða.

  • auka þeir þrautseigju og getu til að takast á við áföll og mótlæti. 

Markmiðin með styrkleikaþjálfunni eru að styðja við nemendur í að:

  • sjá og efla styrkleika sína 

  • æfa samskipti og tilfinningagreind

  • sjá styrkleika annarra 

  • vinna með öðrum - samvinna

  • að byggja upp enn jákvæðari skólasamskipti.

Verkfærin sem við notum til að ná settum markmiðum eru 26 styrkleikar sem styrkleika teymið hafa þýtt yfir á íslensku. Teymið þýddi einnig styrkleikaspjöld sem er gott verkfæri fyrir kennara til að útskýra styrkleika hugtökin fyrir nemendum.

Í skólanum vinnum við fjölbreytt verkefni sem koma frá heimasíðu See the Good, frá kennurum, nemendum og styrkleika teyminu. Við reynum að hafa verkefnin sýnileg í skólanum sem og styrkleika hvers mánuðar.

Á síðasta skólaári 2024-2025 unnum við sérstaklega með styrkleikana: samvinna, félagsfærni, góðvild, þakklæti, kærleikur og forvitni.

Á þessu skólaári 2025-2026 byrjum við haustönnina á að vinna sérstaklega með þessa styrkleika:

Bjartsýni- ágúst, september. 

Hugrekki- október.

Húmor- nóvember, desember.

Hvað er hægt að gera heima:

Foreldrar geta kennt börnum sínum að koma auga á styrkleika sína og annara fjölskyldumeðlima heima fyrir og koma þeim í orð.
Ígrunda og ræða hvað gekk vel í vikunni eða fara yfir daginn og ræða hvaða styrkleikar voru notaðir. Ræða hvaða styrkleika við notum í tómstundum/íþróttum.