2.kafli - Stefna Árskóla

Í lögum um grunnskóla frá 2008 segir að markmið grunnskóla, í samvinnu við heimilin, sé að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Grunnskólinn á að leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. Skólinn skal stuðla að góðu samstarfi við heimilin með það að leiðarljósi að tryggja farsælt skólastarf. Starfshættir skólans eiga að mótast af umburðarlyndi, kærleika, arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi. 

Grunnskólinn á að veita nemendum tækifæri til þess að afla sér þekkingar og leikni og temja sér vinnubrögð sem stuðla að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið á því að leggja grunn að sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra. Skólastefna Árskóla byggist á ofangreindum markmiðum og menntastefnu Skagafjarðar. 

Í Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 eru sex grunnþættir menntunar lagðir til grundvallar. Þeir eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Í starfi Árskóla er leitast við að hafa þá að leiðarljósi í starfsháttum skólans, samskiptum og skólabrag. Efnisval og inntak náms, kennslu og leiks mótast af þessum grunnþáttum. 

Í Árskóla er lögð áhersla á að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem nemendum og starfsmönnum líður vel í leik og starfi. Í skólastarfinu er lögð áhersla á að allir starfsmenn vinni náið saman að velferð nemenda. Kennarar beita fjölbreyttum kennsluaðferðum og hafa miklar væntingar til nemenda. Í Árskóla er öflugt stoðkerfi og teymisvinna um málefni nemenda. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu nemenda og starfsmanna og jákvæðan skólabrag. Hvatt er til skapandi hugsunar og frjálsrar tjáningar og í því skyni er reynt að stuðla að blómlegri listkennslu í öllum árgöngum. Skólinn er Olweusarskóli  og hefur unnið að eineltismálum undir merkjum Olweusar frá árinu 2002. 

Í Árskóla er starfað samkvæmt einkunnarorðunum lifa – leika – læra.

Að lifa vísar til þess að skólinn:

  • búi nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi

  • stuðli að sjálfstæðri hugsun og jákvæðri sjálfsmynd nemenda

  • þjálfi hæfni nemenda til samstarfs við aðra

  • leiðbeini nemendum við að sýna umburðarlyndi og víðsýni

Að leika vísar til þess að skólinn:

  • efli starfsgleði nemenda með því að nota fjölbreyttar náms- og kennsluaðferðir

  • hafi fasta viðburðadaga þar sem nemendur fá að njóta sín í leik og starfi

  • leggi áherslu á leiklist og sviðsframkomu í öllum árgöngum

  • leggi áherslu á að læra í gegnum leik

Að læra vísar til þess að skólinn:

  • veiti nemendum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni

  • kenni nemendum vinnubrögð sem stuðla að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska   

  • hvetji nemendur til ábyrgðar á eigin námi

  • veiti markvissa endurgjöf til nemenda til að stuðla að framförum í námi

  • vinni að einstaklingsmiðun náms þar sem þörfum hvers einstaklings er mætt

  • skapi hvetjandi námsumhverfi þar sem notaðar eru fjölbreyttar náms- og kennsluaðferðir og krefjandi viðfangsefni

  • hvetji nemendur til ígrundunar og virkrar þátttöku í námi