Á þessu skólaári unnum við áfram að innleiðingu verkefnisins „See the Good!“, eða „Sjáðu styrkleikann!“ eins og það kallast á íslensku. Verkefnið snýst um að innleiða aðferðafræði sem byggir á jákvæðri sálfræði sem var þróuð í Finnlandi og hjálpar nemendum að átta sig á hvar styrkleikar þeirra liggja.
Styrkleikarnir sem við unnum með á þessu skólaári voru:
Bjartsýni

Hugrekki

Húmor

Lærdómsfús

Sköpunargleði

Sjálfsstjórn

Nemendur á mið- og unglingastigi fengu það hlutverk að kjósa um styrkleika mars, apríl og maí. Fyrir valinu urðu sköpunargleði í mars og sjálfsstjórn í apríl og maí. Hér koma nokkrar myndir af verkefnum nemenda á þessu skólaári