Dansmaraþonbolir 10. bekkinga

Dansmaraþon hjá 10. bekkingum verður 27. og 28. október (miðvikudagur og fimmtudagur).
Hægt er að panta dansmaraþonboli á morgun þriðjudag og á miðvikudaginn. Ágóði sölunnar rennur í ferðasjóð 10. bekkinga. Í ár eru bolirnir rauðir með hvítu þrykki. Þeir fást í stærðunum XS youth (110), S youth (116), M youth (128), L youth (140) og XL youth (152), S, M, L, XL og XXL. Bolurinn kostar 1500.- kr.
Bolirnir verða til afgreiðslu á miðvikudagsmorgni.
Vinsamlegast sendið pantanir á netfangið ritari@arskoli.is