Opið vísindahús

Á laugardeginum 18. apríl verður haldið opið vísindahús í Árskóla þar sem íbúum í Skagafirði er boðið að koma og upplifa vísindi á lifandi og aðgengilegan hátt. Þar gefst einstakt tækifæri fyrir fjölskyldur og áhugasama að kynnast starfi háskólasamfélagsins.  Heimsókn Háskólalestarinnar er kærkomin viðbót við dagskrá Sæluviku og styrkir tengsl skóla, samfélags og háskólasamfélagsins með fræðslu, forvitni og sköpun í fyrirrúmi.   
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Háskólalestarinnar:
https://haskolalestin.hi.is/is