Glitrandi dagur

Föstudaginn 27. febrúar ætlum við að ,,glitra í Árskóla" í tengslum við dag einstakra barna.
Félag einstakra barna hvetur fyrirtæki og stofnanir til að sýna stuðning og samstöðu við þá sem lifa með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni. 
Allt sem er litríkt og glitrandi er skemmtilegt og minnir okkur á að börn eru allskonar.

Sjáumst ,,glitrandi" á föstudaginn.