Nú styttist í að Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall hefjist og ætlar hinn eini sanni Páll Óskar að opna hátíðina á miðvikudeginum 21. október í Skagafirði og síðan mun hann loka henni miðvikudaginn 4. nóvember í Húnavatnssýslunum.
Því mun Páll Óskar koma í Árskóla, íþróttahúsið, klukkan 10:30-11:30 og syngja fyrir og með okkur, öllum nemendum og starfsmönnum miðvikudaginn 21. október.
Áherslan verður á lagið Eitt af blómunum
Innihald textans er mikilvægt og tengist Baráttudegi gegn einelti. Við hvetjum nemendur og starfsmenn til að læra textann og syngja með af lífs og sálar kröftum. Páll Óskar getur ekki gefið hverjum og einum tíma til að taka sjálfur með honum en er alveg til í hópmynd.