Við í Árskóla erum afar stolt af hinum hugmyndaríka Snjólfi Atla Hákonarsyni, nemanda í 6. bekk skólans. Fyrr í vor tók hann þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og var síðan tilkynnt að hugmynd hans, Sólarmjalta, hefði verið ein þeirra 25 hugmynda sem komst í úrslit. Honum gafst því tækifæri til að vinna áfram að hugmyndinni sinni í Háskóla Íslands og hefur hann nú útbúið líkan að búnaði fyrir mjaltarróbóta, sem úðar sólarvörn á júgur eftir mjaltir á sólríkum dögum, svo kýr sólbrenni ekki á júgrunum.
Á sunnudag var svo hátíðleg athöfn og verðlaunaafhending á Háskólatorgi þar sem tilkynnt var að Snjólfur Atli hefði sigrað Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2025. Við færum honum innilegar hamingjuóskir.