Í tilefni af Skúnaskralli hafa rithöfundar komið í Árskóla.
Á þriðjudaginn 27. október fengu 5. og 6. bekkur heimsókn frá Þórunni Rakel Gylfadóttur. Hún var með upplestur og ritsmiðju þar sem hún fjallaði um bókina Síðasti dagurinn sem hún skrifaði í samstarfi við ellefu ára Grindvíkinginn Matthildi Yrsu Sigurðardóttir og myndlistarkonuna Diddu Flygenring. Bókin er sönn saga Matthildar Yrsu um síðasta daginn í Grindavík og flóttann undan náttúruhamförum.
Þórunn Rakel las upp úr bókinni fyrir nemendur, fjallaði um það hvernig bók verður til og að lokum fengu nemendur aðstoð við að semja sínar eigin sögur.
Á miðvikudaginn 28. október kom Felix Bergson og las og söng fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í september kom út ný barnabók eftir hann, ætluð 6-12 ára krökkum, um Ævintýri Freyju og Frikka. Sagan heitir Leynifélag í lífsháska og er æsispennandi ævintýri með húmor og samfélagslegri skírskotun. Mjög er vandað til útgáfunnar og bókina prýða frábærar myndir eftir Kára Gunnarsson.
Nemendur voru áhugasamir og höfðu gaman af þessum heimsóknum, við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.