Skólaslit Árskóla 2025

Árskóla var slitið miðvikudaginn 4. júní, í 27. skipti. Skólaslitin voru þrískipt, 1. - 4. bekkur, 5. - 8. bekkur, 9. og 10. bekkur. Skólaslitin tóku mið af aldri nemenda og voru hver með sínu sniði. 

Á skólaslitum yngsta stigs kvaddi 4. bekkur með skólasöng Árskóla. Á skólaslitum 5. - 8. bekkjar fengu 5. bekkingar bókina „Skín við sólu,“ sem Kaupfélag Skagfirðinga gaf öllum 10 ára börnum í Skagafirði. Hver nemandi fékk áritað eintak. 5. bekkingar sungu síðan tvö fyrstu erindin af laginu „Skín við sólu Skagafjörður.“ Snjólfi Atla Hákonarsyni í 6. bekk var afhent viðurkenning fyrir 1. sæti í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Á báðum þessum athöfnum var kveðjuatriði frá 10. bekkingum. Það voru þær Ásta Ólöf Jónsdóttir og Lára Sigurðardóttir sem sungu. 

Að lokum voru nemendur í 9. og 10. bekk kvaddir með hátíðlegri athöfn. Óskar skólastjóri fór með hugleiðingar um skólastarfið. Hallfríður aðstoðarskólastjóri fór yfir viðburðardaga vetrarins í annál skólaársins. Formenn nemendaráðs, Kristján Leó Steinsson og Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir fluttu kveðjur frá 10. bekk. Nokkrir starfsmenn eru að láta af störfum eftir áratugastörf, þau Ólöf Svandís Guðmundsdóttir, Þorbjörg Sandra Magnúsdóttir, Margrét Aðalsteinsdóttir, Þorfinna Lydia Jósafatsdóttir, Hólmfríður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Matthíasdóttir, Sigríður Jensdóttir og Óskar G. Björnsson. Þeim voru þökkuð farsæl störf og fengu blóm og gjafir frá skólanum. Þá færðu fulltrúar Skagafjarðar, Sigfús Ingi Sigfússon og Bryndís Lilja Hallsdóttir Óskari skólastjóra blóm og gjöf með þakklæti fyrir áratuga farsæl störf að skólamálum í Skagafirði.

Viðurkenningar voru veittar fyrir alhliða námsárangur, þær fengu Caitlynn Morrie S. Mertola, Dagbjört Sísí Einarsdóttir og Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir. Formennirnir Kristján Leó Steinsson og Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir fengu viðurkenningar fyrir félagsstörf. Allir útskriftarnemendur fengu bókina „Alls konar íslenska“ eftir Eirík Rögnvaldsson og rós í kveðjugjöf frá skólanum. Milli atriða fluttu nokkrir nemendur í 10. bekk metnaðarfull tónlistaratriði. Óskar skólastjóri flutti að lokum þakklæti sitt fyrir að vera þátttakandi í skólastarfi á Króknum síðustu 60 ár sem nemandi, kennari og stjórnandi. Að lokinni athöfn buðu forráðamenn 9. bekkinga og skólinn til veislu í matsal skólans þar sem allir áttu góða stund.