Skólahjúkrun

Í vetur verða tveir hjúkrunarfræðingar starfandi við Árskóla, þær Sylvía Sif Halldórsdóttir og Ásta Kristín Árnadóttir. Þær verða til skiptis með viðveru í skólanum í viku í senn og verða viðverutímar eftirfarandi:
Sylvía milli kl. 08:00 - 14:00 mánudaga til fimmtudaga
Ásta milli kl. 08:00 - 13:00 mánudaga til fimmtudaga
Engin viðvera hjúkrunarfræðings er á föstudögum

Á hurð skrifstofu hjúkrunarfræðings verður hægt að sjá hver er með viðveru þá vikuna og einnig viðverutímana.

Hægt er að hafa samband við þær ef spurningar vakna í netföngin sylvia.sif.halldorsdottir@hsn.is og asta.kristin.arnadottir@hsn.is eða á viðverutíma í síma 455-1124

Heilsuvernd grunnskólabarna er hluti af þjónustu heilsugæslunnar og er framhald af ung- og smábarnavernd. Markmið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Unnið er í náinni samvinnu við forsjáraðila nemanda, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi.
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, heilbrigðisfræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um heilsuvernd grunnskólabarna.
Frekari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má finna á heilsuveru og á heimasíðu skólans. Sjá eftirfarandi hlekki:

https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/throskaferlid/heilsuvernd-barna/heilsuvernd-grunnskolabarna/

https://www.arskoli.is/is/forsida/skolahjukrunarfraedingur

Inni á heilsuveru linknum er að finna upplýsingar um fræðslu, skimanir og bólusetningar fyrir hvern bekk fyrir sig. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur þær upplýsingar sem eiga við um ykkar bekk og hafa samband ef spurningar vakna.

Sendur hefur verið póstur til foreldra/forráðamenn allra nemenda skólans og óskað eftir upplýsingum um börn sem eru með fötlun eða langvinna og/eða alvarlega sjúkdóma. 

Ef nemendur þurfa að fá lyfjagjafir á skólatíma þurfa foreldrar/forráðamenn að fylla út blað og skila til hjúkrunarfræðinga ásamt lyfinu sem á að gefa og kvitta fyrir að hjúkrunarfræðingur hafi móttekið lyfið.

Hafið samband við hjúkrunarfræðinga ef spurningar vakna.