Hrekkjavaka

Fljúgum hærra!
Fljúgum hærra!

Hræðilega skemmtileg hrekkjavaka í Árskóla

Það var hræðilegt um að litast í Árskóla þegar hrekkjavakan var haldin hátíðleg föstudaginn 30. október. Margir nemendur og starfsmenn mættu í tilheyrandi búningum og ekki var alltaf auðvelt að þekkja hver leyndist á bak við gervið.

Stofur voru skreyttar í stíl við daginn og ýmsar hryllilegar veitingar voru í boði. Þrátt fyrir óhugnanlegt yfirbragð var gleðin allsráðandi og dagurinn hræðilega skemmtilegur!