31 sýning í Bifröst

Í Árskóla er rík áhersla lögð á leiklist. Allir árgangar halda sína árshátíð með aðstoð starfsmanna og þar fá allir nemendur tækifæri til að stíga á svið fyrir framan áhorfendur. Verkefnin verða meira krefjandi eftir því sem börnin eldast og lýkur leiklistarkennslu Árskólanemenda með því að tíundu bekkingar setja upp leikverk í fullri lengd, sem um leið er fjáröflun fyrir utanlandsferð þeirra til Danmerkur. 

Í gær voru síðustu árshátíðarsýningar nemenda í Árskóla á þessu skólaári. Alls luku nemendur, með aðstoð starfsmanna, við 31 metnaðarfulla og vel heppnaða sýningu í Bifröst í vetur. Sýningarnar voru allar fyrir fullu húsi svo gera má ráð fyrir að áhorfendur á þessum sýningum hafi verið tæplega 3000.