Upplýsingar um ný stöðu- og framvindupróf Matsferils í stærðfræði og lesskilningi
Prófin hafa þann tilgang að veita upplýsingar um stöðu og framvindu nemenda í námi. Þannig er hægt að bregðast markvisst við námsþörfum þeirra. Prófin eru stöðluð sem þýðir að hægt er að setja fram aldursbundin viðmið og bera árangur saman við landsmeðaltal.
Prófin verða lögð fyrir nemendur í 4. - 10. bekk Árskóla. Tímabilið sem skólar hafa til að leggja prófin fyrir er 2. - 27. mars.
Prófin eru lögð fyrir rafrænt og á skólatíma. Próftíminn er 80 mínútur en flestir nemendur leysa þau á 40 - 60 mínútum.
Prófin krefjast ekki sérstaks undirbúnings en það er mikilvægt að hvetja börn til að gera eins vel og þau geta. Þannig fást bestu upplýsingarnar um færni þeirra. Útbúin hafa verið sýnispróf sem sniðin eru að aldri nemenda. Þau eru aðgengileg á synisprof.mms.is
Sýnisprófin eru ekki ætluð til þjálfunar í stærðfræði eða lesskilningi heldur til að kynnast stafrænu umhverfi prófanna.
Niðurstöður prófanna verða birtar forsjáraðilum í maí, á Mínum síðum á island.is
Tölvupóstur hefur verið sendur foreldrum með nánari upplýsingum. Sjá einnig upplýsingar á síðu miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu: Stöðu- og framvindupróf Matsferils