Frá mótinu
Meistaramót Norðurlands vestra í skólaskák, einstaklingskeppni, fór fram í Húnaskóla miðvikudaginn 15. apríl.
Teflt var á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi. Umhugsunartími var 5 mín + 2 sek á hverja skák.
Hver skóli mátti senda tvo keppendur á hverju stigi.
Frá Árskóla kepptu tveir á miðstigi og tveir á unglingastigi og stóðu þeir sig með prýði.
Á miðstigi varð Eyþór Ingi Heiðarsson í fyrsta sæti og Snjólfur Atli Hákonarson í öðru til þriðja sæti. Eyþór Ingi Heiðarsson er því skólaskákmeistari Norðurlands vestra á miðstigi.
Á unglingastigi varð Jóhann Elís Sigurðsson í þriðja sæti og Snæbjörn Aron Erlusson í fjórða sæti.
Sigurvegari hvers flokks fær keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer í Ólafsvík 9.-10. maí.