Innritun árgangs 2020

Innritun barna sem hefja skólagöngu í grunnskólum Skagafjarðar næstkomandi haust er hafin. Foreldrar barna fædd árið 2020 eru hvattir til að innrita börn sín sem fyrst eða í síðasta lagi 15. maí nk.

Innritun fer fram í gegnum vefgáttina Ísland.is

Í Skagafirði eins og í öðrum sveitarfélögum eru ákveðin skólahverfi. Börn sækja skóla innan sinna skólahverfa og skipulag skólaaksturs tekur mið af þeim. 

Nánari upplýsingar um skólahverfin er að finna í eftirfarandi frétt á heimasíðu Skagafjarðar:

https://www.skagafjordur.is/is/frettir/innritun-argangs-2020-i-grunnskola-i-skagafirdi