Það er nóg um að vera í Árskóla þessa vikuna þar á meðal er heilsueflandi vika sem felur í sér að árgangarnir gera meira heilsueflandi en aðra daga. Hugleiðsla, jóga, gönguferðir og fræðsla um andlega og líkamlega heilsu svo eitthvað sé nefnt. Rétt er að vekja athygli á Mílunni, sem er a.m.k. 1,6 km löng gönguferð. Allir árgangar hafa hana vikulega á sinni stundaskrá. Í dag fengum við góða heimsókn í tilefni af 112-deginum. Félagar úr Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit komu ásamt starfsmönnum frá Lögreglunni á Sauðárkróki og Brunavörnum Skagafjarðar. Það var heldur betur handagangur í öskjunni þegar nemendur skoðuðu fararskjóta þessara aðila að innan og utan um leið og þeir fengu fræðslu um öryggismál.