Horfðu til himins!
Árskóli fær skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar Háskólalestin frá Háskóla Íslands kemur í skólann dagana 16.–18. apríl. Háskólalestin er metnaðarfullt verkefni frá Háskóla Íslands þar sem markmiðið er að efla áhuga nemenda á vísindum, fræðum og háskólanámi með lifandi og fjölbreyttri kennslu. Á laugardeginum 18. apríl verður haldið opið vísindahús þar sem íbúum í Skagafirði er boðið að koma og upplifa vísindi á lifandi og aðgengilegan hátt. Þar gefst einstakt tækifæri fyrir fjölskyldur og áhugasama að kynnast starfi háskólasamfélagsins.
Háskólalestin býður upp á kennarasmiðjur og fjölbreytt námskeið fyrir nemendur á unglingastigi Árskóla, Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna. Nemendur fá tækifæri til að kynnast ólíkum fræðasviðum með virkri þátttöku og skemmtilegum verkefnum. Námskeið sem nemendur geta valið úr eru:
Blaða- og fréttamennska
Tilraunastofa í eðlisfræði
Vísindi bleikjunnar - slepjulegt og saltað
Hugrekki í hegðun
Íþrótta- og heilsufræði
Japönsk fræði
Skurðlækingar
Sjúkraþjálfun
Stjörnufræði
Skapandi tæknismiðja
Fallbyssu skotkeppni
Heimsókn Háskólalestarinnar er kærkomin viðbót við dagskrá Sæluviku og styrkir tengsl skóla, samfélags og háskólasamfélagsins með fræðslu, forvitni og sköpun í fyrirrúmi.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Háskólalestarinnar:
https://haskolalestin.hi.is/is