Göngum í skólann

Setning 4. september á íþróttavellinum
Setning 4. september á íþróttavellinum

Árskóli hýsir setningu Göngum í skólann þetta skólaárið. 
Setningin verður á íþróttavellinum, föstudaginn 4. september kl. 10:20.
Skólastjóri býður gesti velkomna, fulltrúi frá ÍSÍ segir nokkur orð, sveitarstjóri ávarpar samkomuna og lögreglan flytur stutt erindi um umferðaröryggi.   Að lokinni setningu ganga nemendur, starfsfólk og gestir saman stuttan hring í nágrenninu.

Um verkefnið
Undanfarin ár hefur starfsfólk Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ farið um landið og sett Göngum í skólann og Ólympíuhlaupi ÍSÍ.  Í ár verður Ólympíuhlaup ÍSÍ sett í Fjallabyggð þann 3. september og setning Göngum í skólann verður í Árskóla þann 4. september.

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Verkefnið stuðlar að aukinni hreyfingu og fræðslu um ávinning reglulegrar hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan.

Jafnframt er markmið að:

  • efla færni barna til að ferðast á öruggan hátt til skóla

  • kenna reglur um umferðaröryggi

  • draga úr umferð við skóla

  • stuðla að betra lofti og öruggara nærumhverfi

  • auka vitund um umhverfismál og „gönguvænt“ nærumhverfi

 
Formlegur upphafsdagur verkefnisins er 9. september. Verkefnið stendur til 7. október, sem jafnframt er Alþjóðlegi göngudagur í skólann (International Walk to School Day). Heildarlengd verkefnisins er fjórar vikur.  Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ eru viðburðir undir Íþróttaviku Evrópu