Danskökur

Krakkarnir í 10.bekk smelltu í kökur og skreyttu eftir kúnstarinnar reglum, en þemað í skreytingunum var dans, enda er dansmaraþonið alveg að fara að skella á.

Litagleði, stjörnur, hjörtu og diskó var efst í huga og gaman að sjá hve fjölbreyttar kökurnar urðu.