Árskóli tekur upp Læsi – til að styðja við heimalestur

Læsir
Læsir

Læsir er einfalt og notendavænt app sem heldur utan um heimalestur nemenda.  Umsjónarkennarar munu  láta foreldra vita áður en notkun hefst. Með því að skrá lestur í forritið safnast upplýsingar um hversu oft nemandi les og hversu margar mínútur í einu. Nemendur safna loknum bókum á rafræna bókahillu.

Leiðbeiningar fyrir forráðamenn

Til að hefja notkun á Læsi eru forráðamenn beðnir um að fylgja eftirfarandi skrefum:

  1. Sækið appið Læsi í App Store eða Play Store.

  2. Veljið „Nýskráning“ og sláið inn kóðann sem þið fáið frá umsjónarkennara.

  3. Búið til aðgang á ykkar nafni og skráið síðan barnið.

  4. Að lokinni skráningu þarf umsjónarkennari að samþykkja aðganginn áður en notkun hefst.


    Við vonum að foreldrar og nemendur taki vel í þessa nýjung og að sem flestir verði búnir að skrá sig fyrir páskafrí. 

Athugið að fleiri en einn forráðamaður getur verið skráður á hvert barn. Þannig geta amma, afi eða aðrir sem koma að heimalestri einnig tekið þátt og stutt barnið í lestrinum.
Við væntum þess að Læsir verði hvetjandi og ánægjuleg viðbót við heimalestur nemenda og styrki enn frekar gott samstarf heimilis og skóla. Ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við umsjónarkennara barnsins.

Sjá nánar upp appið hér: Læsir  (leiðbeiningar fyrir forráðamenn, spurt og svarað og upplýsingar um persónuvernd).