10. bekkur sýnir Toy Story

Sáttur hópur að lokinni frumsýningu.
Sáttur hópur að lokinni frumsýningu.

10. bekkur frumsýndi Leikfangasögu (Toy Story) í Bifröst þann 12.mars fyrir fullu húsi og hlaut sýningin frábærar undirtektir frumsýningargesta. 
Leikstjórar eru Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir. 
Falleg, fyndin og litrík sýning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara! 
Sýningar verða um helgina og í næstu viku og nóg að gera í miðasölunni. 

Leikfangasaga segir frá lífi Adda og leikfanga hans sem lifna við um leið og drengurinn lætur sig hverfa úr herberginu.  Samtals á hann tugi leikfanga og þykir afar vænt um þau öll. Eins og gengur og gerist hjá ungum krökkum er það alltaf eitt leikfang sem stendur upp úr. Uppáhalds leikfang Adda er kúrekabrúðan Viddi, heiðarlegur fógeti úr villta vestrinu. Hin leikföngin líta upp til hans og er hann einhverskonar foringi hópsins og hlýða allir því sem hann segir.  Þegar Addi fær Bósa Ljósár í afmælisgjöf vandast málið hjá Vidda. 

Missið ekki af frábærri sýningu með hæfileikaríkum nemendum í 10. bekk!