Vinna við gæðagreina

Stjórn nemendafélags Árskóla hefur verið að undirbúa vinnu með nemendagæðagreina. Vinnan hefur verið í styrkri umsjón Helgu Harðar og hafa krakkarnir verið að prufukeyra gæðagreinana áður en þeir verða lagðir fyrir nemendur skólans á mið- og unglingastigi.  Krakkarnir hafa lagt sig mikið fram og unnið vel eins og sjá má á myndunum.