Úrslit í stærðfræðikeppninni

Úrslit í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og níundu bekkja í grunnskólum á Norðurlandi vestra og Tröllaskaga fór fram í Ólafsfirði í dag. Alls tóku 15 nemendur þátt í úrslitunum, þar af fjórir nemendur frá Árskóla. Það voru Birkir Hallbjörnsson, Embla Sól Þorgeirsdóttir Johansson, Hildur Heba Einarsdóttir og Sólrún Silfá Guðmundsdóttir. Þau stóðu sig öll með prýði og Hildur Heba sigraði keppnina. Í öðru sæti varð Jódís Helga Káradóttir, Varmahlíðarskóla, og í þriðja sæti varð Styrmir Þeyr Traustason, Dalvíkurskóla.
Við óskum öllum keppendum til hamingju með árangurinn.