Svakalegu lestrarkeppninni 2026 er lokið. Alls tóku 22.372 nemendur í 1. - 7. bekk þátt í keppninni og lesnar voru alls 12.393.550 mínútur í 108 skólum. Keppnin var dagana 15. september til 6. október.
Því miður náði Árskóli ekki vinningssæti í ár en allir þátttakendur stóðu sig vel og eru í okkar huga sigurvegarar.
Við óskum öllum nemendum til hamingju með að hafa aukið lestrarfærni sína með því að hafa tekið þátt og við þökkum foreldrum fyrir að hvetja börnin sín áfram.
Við hvetjum alla til að vera áfram duglegir að lesa, nemendur, foreldra og kennara.