Svakalega lestrarkeppnin

📚 Svakalega flottur árangur í Svakalegu lestrarkeppninni! 📚

Nú er Svakalegu lestrarkeppninni sem var fyrir nemendur í 1. - 7. bekk lokið og stóðu nemendur okkar í Árskóla sig einstaklega vel! 🎉👏

Saman lásu nemendur 122.358 mínútur og 1.127 bækur! Þetta er sannarlega glæsilegur árangur og erum við afar stolt af duglegum lestrarhestum okkar. 🐴📖

Þótt keppninni sé lokið erum við hvergi nærri hætt að lesa. Við höldum ótrauð áfram að lesa, æfa okkur og bæta okkur í lestri í allan vetur. 💪📚

Endanleg úrslit keppninnar verða svo gerð opinber í næstu viku, þannig að það verður spennandi að sjá hvernig okkur hefur gengið!🏆

Takk fyrir frábæra þátttöku, kæru nemendur! ❤️

Höldum áfram að lesa og njóta, því lestur er bæði skemmtilegur og mikilvægur! 📚