Skúnaskrall

Skúnaskrall
Skúnaskrall

https://skunaskrall.is/ 

Dagana 21. október til 4. nóvember 2026 verður barnamenningarhátíðin Skúnaskrall haldin í öllum sveitarfélögum
á Norðurlandi vestra undir yfirskriftinni „Öll saman“.
Áhersla er á fjölbreytta viðburði þar sem börn fá tækifæri til að upplifa, skapa og
taka virkan þátt í fjölbreyttum menningarviðburðum.
Eitt af meginmarkmiðum hátíðarinnar er að tryggja öllum börnum og ungmennum
svæðisins aðgang að vandaðri barnamenningu, óháð búsetu eða aðstæðum. 

Ýmis námskeið, vinnustofur og listviðburðir prýða dagskrá hátíðarinnar.  Meginreglan er að aðgangur sé ókeypis og veiti því öllum börnum og ungmennum á Norðurlandi vestra tækifæri til að upplifa og vinna að fjölbreytileika listsköpunar.

Skúnaskrall er þátttökuhátíð og ýtir því einnig undir og hvetur mannauð Norðurlands vestra til að stýra námskeiðum, viðburðum og smiðjum fyrir börn og ungmenni.