Skólahald fellur niður föstudaginn 14. febrúar

Almannavarnarnefnd Skagafjarðar og Húnavatnssýslna tók þá ákvörðun á fundi sínum núna eftir hádegið í dag að allt skólahald skyldi fellt niður á Norðurlandi vestra á morgun, föstudaginn 14. febrúar 2020.
Er það gert vegna verulega slæms veðurútlits í Skagafirði og Húnavatnssýslum og yfirstandandi óvissustigs almannavarna. Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað geti gerst af náttúru- eða mannavöldum, sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar er ógnað.