Piparkökuskreytingar

Við ætlum að eiga notalega aðventustund saman í matsal Árskóla þriðjudaginn 12. desember milli 16 og 18 við að mála piparkökur og
öll fjölskyldan er hjartanlega velkomin.
Nemendur í 10. bekk verða með veitingasölu og allur ágóðinn rennur óskiptur í ferðasjóð
þeirra.
Piparkökur og glassúr til að skreyta með verður í boði foreldrafélagsins. Gott er að hafa
meðferðis box eða poka til að taka kökurnar með sér heim.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll og eiga notalega jólastund saman.

Með jólakveðju, Foreldrafélag Árskóla