Páll Óskar í Árskóla 21. október

Páll Óskar mætir í Árskóla, íþróttahúsið þann 21. október kl. 10:30 - 11:30 og syngur lagið Eitt af blómunum með nemendum og starfsfólki Árskóla.
Páll Óskar opnar barnamenningarhátíðina Skúnaskrall í skólunum Skagafirði og lokar henni miðvikudaginn 4. nóvember í Húnavatnssýslunum. 

Páll mun syngja lagið Eitt af blómunum og ef til vill fleiri lög. 
Innihald textans tengist Baráttudegi gegn einelti. Við hvetjum nemendur og starfsmenn til að læra textann og syngja með af lífs og sálar kröftum.