Opið vísindahús
Opið vísindahús verður í boði háskólalestar Háskóla Íslands í Árskóla laugadaginn 18. apríl kl. 11 - 14. Háskólalestin er metnaðarfullt verkefni frá Háskóla Íslands þar sem markmiðið er að efla áhuga á vísindum, fræðum og háskólanámi. Í vísindahúsinu er íbúum í Skagafirði er boðið að koma og upplifa vísindi á lifandi og aðgengilegan hátt. Þar gefst einstakt tækifæri fyrir fjölskyldur og áhugasama að kynnast starfi háskólasamfélagsins.
Háskólalestin var með kennarsmiðjur fyrir grunnskólakennara í Skagafirði fimmtudaginn 16. apríl sem tókust vel. Smiðjurnar voru um hegðun, gervigreind í skólastarfi og tilraunir í vísindakennslu.
Föstudaginn 17. apríl voru vel heppnuð námskeið fyrir nemendur á unglingastigi Árskóla, Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna. Nemendur fengu tækifæri til að kynnast ólíkum fræðasviðum með virkri þátttöku og skemmtilegum verkefnum. Eftirfarandi námskeið voru í boði:
Blaða- og fréttamennska
Tilraunastofa í eðlisfræði
Vísindi bleikjunnar - slepjulegt og saltað
Hugrekki í hegðun
Íþrótta- og heilsufræði
Japönsk fræði
Skurðlækingar
Sjúkraþjálfun
Stjörnufræði
Skapandi tæknismiðja
Fallbyssu skotkeppni
Gestir sem heimsækja opið vísindahús fá fjölbreytta kynningu í takt við námskeiðin að ofan. Heimsókn Háskólalestarinnar er kærkomin viðbót við dagskrá Sæluviku og styrkir tengsl skóla, samfélags og háskólasamfélagsins með fræðslu, forvitni og sköpun í fyrirrúmi.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Háskólalestarinnar:
https://haskolalestin.hi.is/is