Ólympíuhlaup

Ólympíuhlaup Árskóla 2026
Ólympíuhlaup Árskóla 2026
Ólympíuhlaup ÍSÍ var hlaupið í Árskóla miðvikudaginn 23. september. Allir bekkir tóku þátt, unglingastigið hljóp 4,5 km, miðstigið gat valið milli 4,5 km og 2,5 km Yngsta stigið fór 2,5 km og nokkrir völdu 1 km leið.

Ræst var við fyrsta teig Frisbígolfvallarins, hlaupið upp Litla Skóg, eftir Nöfunum og endamarkið var loks neðst í Grænaklauf þar
sem tekið var á móti hlaupurum með stuði og eplasafa. Ekki var um formlega tímamælingu að ræða en hraðasti hlauparinn kom í mark undir 18 mínútum í 4,5 km hlaupinu.

Starfsfólk Árskóla sá um brautargæslu í hlaupinu eða hljóp með. Hlaupið tókst vel og veðrið var þokkalegt, þurrt en smá vindur.

Heilsueflandi teymi við skólann hafði yfirumsjón með framkvæmd hlaupsins.
Ólympíuhlaup ÍSÍ var áður Norræna skólahlaupið og hefur verið haldið frá árinu 1984.
Hlaupið lá í dvala í nokkur ár í Árskóla en eftir vel heppnað hlaup í fyrra var ákveðið að endurtaka leikinn.