Njáluverkefni í 6. bekk

Sýnishorn af verkefni 6. bekkinga
Sýnishorn af verkefni 6. bekkinga

Nemendur í 6. bekk í Árskóla hafa fræðst um Njálu í september. Efnið er notað til að kenna bókmenntahugtök og ritun en þar gefst líka tækifæri til að æfa sig í að horfa eftir styrkleikum annarra. Styrkleiki september mánaðar í Árskóla er samkennd.

Í verkefni sem nemendur unnu í síðustu viku völdu þau sér eina persónu, þ.e. Gunnar eða Hallgerði á Hlíðarenda og Njál eða Bergþóru á Bergþórshvoli. Þau gáfu persónunni 0-4 stjörnur fyrir styrkleikana samkennd, félagsfærni, sjálfstjórn og góðvild. Flest voru þau sammála um að Hallgerður fengi ekki margar stjörnur fyrir sjálfstjórn en Njáll fengi aftur á móti nokkrar stjörnur fyrir félagsfærni.
Þau teiknuðu mynd af persónunni sinni og á bakhlið spjaldsins svöruðu þau spurningum um kosti og galla persónunnar og sögðu frá því af hverju þau völdu þessa persónu. Fyrirmyndin að spjöldunum eru m.a. Pokémon-spjöldin vinsælu þar sem verurnar búa yfir mismunandi styrkleikum sem nýtast þeim í lífinu.