Lokun á gangstétt

Vegna framkvæmda við gervigrasvöll þarf að loka gangstétt vestan við Skagfirðingabraut, á milli vallarhúss og innkeyrslu að bílastæði við Árskóla eins og sjá má á meðfylgjandi teikningu. Á meðan lokuninni stendur þurfa gangandi vegfarendur því að nota gangstétt austan Skagfirðingabrautar. Við viljum því brýna fyrir öllum gangandi vegfarendum að nota gangbrautir við vallarhús og við Árskóla til þess að ganga yfir Skagfirðingabraut.