Leiksýningin Fjarskaland í flutningi 10. bekkjar

Hvernig verður heimurinn okkar ef ævintýrin hverfa?

Fjarskaland í flutningi 10. bekkjar Árskóla

 

Fjarskaland er staðurinn þar sem persónur gömlu, góðu ævintýranna eiga heima. Hætta er á að ævintýrapersónurnar hverfi ef við höldum ekki áfram að lesa ævintýrin. Hlutverk Dóru, stelpu sem hefur gaman af að lesa, er að bjarga ævintýrunum og um leið ömmu sinni sem er týnd í Fjarskalandi. Hún hittir Númenór, verndara ímyndunaraflsins og ferðalag þeirra reynist hin mesta hættuför. Á þessu ferðalagi hitta þau tröllskessuna Gilitrutt, ljósálfinn Dísu, Dimmalimm prinsessu, Rauðhettu, úlfinn, Mjallhvíti og dvergana. Þrátt fyrir ýmsar hættur fylgir ferðalaginu grín og glens. Skemmtileg lög og dansar glæða sýninguna lífi.

Höfundur Fjarskalands er Guðjón Davíð Karlsson (Gói). Höfundur tónlistar er Vignir Snær Vigfússon. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og aðstoðarleikstjóri Eysteinn Ívar Guðbrandsson. 

 

Sýningar í Bifröst:

Miðvikudagur 11. mars kl. 17:00 og 20:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-20:00)

Fimmtudagur 12. mars kl. 17:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-17:00)

Föstudagur 13. mars kl. 17:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-17:00)

Laugardagur 14. mars kl. 14:00 og 17:00 (miðapantanir frá kl. 12.00-17:00)

Sunnudagur 15. mars kl. 14:00 og 17:00 (miðapantanir frá kl. 12:00-17:00)

 

Miðaverð:

5 ára og yngri kr. 500,- Miðapantanir í síma 453-5216.

Grunnskólanemendur kr. 1000,- Vinsamlegast athugið að ekki er 

Fullorðnir kr. 2000,- tekið við greiðslukortum.

 

Verið öll hjartanlega velkomin!