Jólavísur gleðja vegfarendur á Sauðárkróki

Nemendur 6. bekkjar í Árskóla hafa undanfarnar vikur lært um ljóð í íslensku. Þeir hafa velt fyrir sér rími og ljóðstöfum og æft sig að lesa ljóð upphátt. Afrakstur þessarar vinnu er jólakveðja sem gleður nú vegfarendur á Sauðárkróki. Búið er að koma spjöldum fyrir víða um bæinn með upplýsingum um verkefnið og á því er QR-kóði sem skannaður er til að hlusta á jólavísurnar. Á upptökunni heyrist í öllum 45 nemendum bekkjarins.
Við hvetjum þig til að hlusta á kveðjuna og njóta þessa skemmtilega verkefnis.