Jólaleyfi

Jólaleyfi nemenda er frá 20. desember til 3. janúar, að báðum dögum meðtöldum. Skólastarf hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 4. janúar á nýju ári.  Starfsfólk Árskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökkum fyrir gott samstarf á árinu.