Heimsókn lögreglu

Í dag, 27. september, kom lögreglan í heimsókn í alla bekki. Rætt var um ýmsar hættur í umferðinni og í kringum skólann og brýnt fyrir nemendum að fara varlega. Farið var yfir reglur um hjálmanotkun á öllum tegundum hjóla, s.s. reiðhjóla, hlaupahjóla og rafhjóla. Einnig var rætt um nauðsyn þess að vera vera sýnilegur þegar dimma tekur. Allir nemendur fengu endurskinsmerki frá Fiskiðjunni og þeir sem eiga endurskinsvesti voru hvattir til að nota þau þegar dimmt er.