Glitrandi dagur

Ágætu foreldrar/forsjáraðilar.

Mánudagurinn 28. febrúar er dagur einstakra barna. En félagið Einstök börn er stuðningsfélag barna með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni. Í tilefni af deginum er hvatt til þess að klæðast einhverju glitrandi. Glitrið getur verið alls konar, það vekur gleði, það er litríkt og getur verið í öllum útgáfum. 

Bestu kveðjur, starfsfólk Árskóla.