Gleðilega hátíð

Kæru nemendur og aðstandendur. Við sendum ykkur hugheilar óskir um gleðilega jólahátíð, hamingju og farsæld á nýju ári. Þökkum góðar stundir og samstarf á liðnu ári. 

Við minnum einnig á að Matartorg er opið fyrir skráningu í janúar. 

Kennsla hefst á nýju ári miðvikudaginn 4. janúar 2017 samkvæmt stundaskrá. 
Jólakveðja,  starfsfólk Árskóla