Glanni glæpur - síðasta sýning

10. bekkur mun sýna leikritið um Glanna glæp í Bifröst í dag klukkan 17:00. Þetta er síðasta sýning á þessu frábæra verki og viljum við hvetja alla þá sem ekki hafa séð leikritið að tryggja sér miða í tíma.  Hægt er að panta miða frá klukkan 14:00 í dag í síma 453-5216. Ekki missa af þessu tækifæri að skemmta þér með okkur og styðja um leið við ferðasjóð 10. bekkinga.