Fyrirlestur Þorgríms Þráinssonar fyrir foreldra í 1. - 10. bekk

Miðvikudaginn 19. febrúar kl. 17:00 mun Þorgrímur Þráinsson flytja fyrirlesturinn Verum ástfangin af lífinu í matsal Árskóla. Fyrirlesturinn fjallar um að bera ábyrgð á sjálfum sér, huga að litlu hlutunum daglega, setja sér markmið og vera flottur persónuleiki — hjálpa öðrum. Nemendur í 10. bekk fá að njóta fyrirlestursins í skólanum tveimur dögum síðar, föstudaginn 21. feb.

Foreldrum nemenda í 1. - 10. bekk er boðið á fyrirlesturinn sem tekur um 70 mínútur. Hann er samstarfsverkefni skólans og foreldrafélagsins. Við vonumst til að sjá ykkur sem flest á miðvikudaginn.