Eldvarnarfræðsla í 3. bekk

Þann 13. desember fengum við góða gesti þegar Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Skagafjarðar heimsóttu 3. bekk og fræddu nemendur um eldvarnir. Krökkunum gafst tækifæri til að svara eldvarnargetraun á netinu og að þessu sinni var Rakel Birta Gunnarsdóttir dregin út og fékk hún vegleg verðlaun og viðurkenningarskjal sem hún veitti viðtöku úr hendi Svavars Birgissonar slökkviliðsstjóra í dag.