Dansmaraþonbolir

Dansmaraþon hjá 10. bekkingum verður 11. og  12. október (miðvikudagur og fimmtudagur).

Hægt er að panta dansmaraþonboli hjá skólaritara í dag, mánudag og á morgun þriðjudag. Ágóði sölunnar rennur í ferðasjóð 10. bekkinga. Í ár eru bolirnir dökkbláir með ljósbláu þrykki.  Þeir fást í stærðunum XS youth (104/110),  S youth (116), M youth (128), L youth (140) og XL youth (152), S, M, L, XL og XXL.  Bolurinn kostar 1500.- kr.

Sýnishorn til mátunnar eru hjá skólaritara. Bolirnir verða afhentir eftir að dansmaraþon hefst, kl. 11:15.


Vinsamlegast sendið pantanir á netfangið ritari@arskoli.is