Dansmaraþon 10. bekkinga í Árskóla fer fram dagana 8. og 9. október. Munu nemendur dansa frá kl. 10:00 á miðvikudegi til kl. 10:00 á fimmtudegi. Nemendur hafa æft undir stjórn Loga danskennara, sem að sjálfsögðu er mættur og stjórnar dansi af sinni alkunnu snilld.
Dansað með 10. bekk miðvikudaginn 8. okt.
10:30 - 10:55 6. og 7. bekkur
10:55 - 11:20 2. og 3. bekkur
11:30 - 12:00 8. og 9. bekkur
12:00 - 12:25 4. og 5. bekkur
12:25 - 12:50 1. bekkur
Vinsamlegast athugið að hægt er að panta boli með því að senda tölvupóst á ritara. Ekki er hægt að panta boli eftir kl. 12 á þriðjudeginum 7. okt.
Maraþonbolir verða einnig seldir í Árskóla meðan á maraþoni stendur. Þeir kosta 2000 kr og eru afhentir hjá ritara.
Öll velkomin