DANSMARAÞON

Dansmaraþon 10. bekkinga í Árskóla fer fram dagana 5. - 6. október.  Munu nemendur dansa frá kl. 11:00 á miðvikudegi til kl. 11:00 á fimmtudegi.

  • Kaffihús er opið frá kl. 15:30 til 22:00 og þar er hægt að kaupa heimabakað bakkelsi ásamt rjúkandi kaffisopa.

  • 10. bekkingar og foreldrar þeirra standa fyrir matarsölu á miðvikudagskvöldinu. Þá gefst bæjarbúum tækifæri til að fá mat sendan heim eða koma í matsal skólans og snæða þar á meðan fylgst er með nemendum dansa.

Matseðill:

Hinn sívinsæli súrsæti pottréttur að hætti Árskóla borinn fram með , hrísgrjónum og brauði. Gos fylgir.

Verð fyrir tvo með gosi kr. 2500,-

Verð fyrir fjóra með gosi kr. 4000,-

Munið að matinn þarf að panta, hvort sem hann er snæddur heima eða í skólanum.

Tekið er við pöntunum í síma 455 1152 frá kl. 15:00-18:00 miðvikudaginn 5.október.

Maraþonbolirnir seldir á staðnum – takmarkað upplag

Með kveðju 10.bekkur Árskóla