Árskóli eignast fótboltaspil

Nú rétt fyrir skólabyrjun mættu nokkrir vaskir fulltrúar frá Lionsklúbbi Sauðárkróks í Árskóla og færðu skólanum að gjöf tvö fótboltaspil af bestu gerð. Tilefni gjafarinnar er 20 ára afmæli Árskóla. Spilin eru sterkbyggð og hentug fyrir skóla og frístundastarf. Ekki er vafi á að fótboltaspilin munu nýtast nemendum Árskóla vel og vera skemmtilegur valkostur í frímínútum.

Starfsfólk og nemendur Árskóla þakka Lionsmönnum fyrir höfðingjalega gjöf til skólans.